Stjórnir og ráð
 SÍBS blaðið
 Þingmál 2008
 Fréttir

 

 

 SÍBS blaðið

 

 SÍBS
 Síðumúla 6
 108 Reykjavík
 Sími: 5522150
 Netfang: sibs@sibs.is

 

 

    SÍBS


Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga

 

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ LÖG SÍBS 

 

HÉR ER AÐ FINNA UPPLÝSINGAR UM BERKLA

 

STOFNUN SÍBS

Haustið 1938, hinn 24. október, voru 26 berklasjúklingar samankomnir á Vífilsstaðahæli til að stofna Samband íslenskra berklasjúklinga. Tilgangurinn var að reyna að hjálpa útskrifuðum berklasjúklingum að ná fótfestu í lífinu, eftir ára eða áratuga dvöl á heilsuhælum.

BERKLAVÖRN
Stofnendur SÍBS hófust strax handa um stofnun deilda um allt land, undir nafninu Berklavörn. Fjársöfnun var undirbúin og 6. október 1939 voru seld merki SÍBS og blaðið Berklavörn og dagurinn nefndur "Berklavarnardagur".  Það var gengið í nánast hvert hús á landinu og viðtökur voru slíkar að unnt var að byggja Reykjalund og hefja starf sem löngu er landsþekkt. SÍBS hefur frá þeim tíma ,,átt" fyrsta sunnudag í október og sá dagur m.a. verið nýttur til fjáröflunar.

FRAMKVÆMDIR
Árið 1940 var farið að ræða um stofnun vinnuhælis og það ár skrifaði Oddur Ólafsson, læknir grein um málið í blaðið Berklavörn. Þessi umræða leiddi til kaupa á landi af Reykjabændum í Mosfellssveit. Á því landi var jarðhiti og braggar eftir herinn, sem síðan voru notaðir fyrir eldhús, borðstofu og verkstæði. Bygging 10 smáhýsa hófst 1944 og voru 5 þeirra tilbúin 1. febrúar 1945 og þá tók vinnuheimilið til starfa undir nafninu Reykjalundur.

FJÁRSAFNANIR
Þessi ár og næstu var safnað fé með merkjasölu, bílahappdrætti og jafnvel sirkus frá Danmörku. Áfram var byggt og aðalbygging Reykjalundar tekin í notkun 1. febrúar 1950. Þá fjölgaði vistmönnum úr 40 í 90.

FRÆÐSLA
Á þessum árum var einnig rætt um tómstundir og beina menntun sjúklinga. Út úr þessari umræðu komst á iðnskóli á Reykjalundi, sem starfaði frá 1949-1965.

AÐRIR SJÚKLINGAHÓPAR
Með tilkomu berklalyfjanna 1947-1952 fór berklasjúklingum fækkandi.
Þá var farið að taka við öðrum sjúklingum til endurhæfingar og 1963 var tekin í notkun sjúkraþjálfunardeild í kjallara aðalbyggingar Reykjalundar. Uppbyggingastarfið hélt svo stöðugt áfram með styrk happdrættisins og 1970 voru vistmenn orðnir 144.

FJÖLGUN AÐILDARFÉLAGA
Með fækkun berklasjúklinga var talið rétt að fá til liðs við SÍBS aðra brjóstholssjúklinga. Astma- og ofnæmisfélagið kom til samstarfs árið 1974 og þá var jafnframt nafni félagsins breytt í Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga. Landssamtök hjartasjúklinga (nú Hjartaheill) komu  í samtökin árið 1992, þá félag fólks með svefnháðar öndunartruflanir, Vífilsstaðadeild SÍBS sem nú heitir Vífill, félag einstaklinga með svefnháðar öndunartruflanir- kæfisvefn árið 1994 og þar næst Samtök lungnasjúklinga árið 1998.


HAGSMUNAGÆSLA
Tilgangur SÍBS er sá m.a. að sameina innan vébanda sinna fólk með berkla, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, astma- og ofnæmi og svefnháðar öndunartruflanir og vinna að því að heilbrigðisþjónusta og félagsleg aðstaða þessa fólks sé sem fullkomnust.

VÍÐTÆK STARFSEMI SÍBS
Auk Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar starfrækir SÍBS nú Múlalund, vinnustofu fyrir öryrkja og Happdrætti SÍBS sem er kjölfesta alls starfs SÍBS.

Í samstarfi við Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og Félag eldri borgara í Reykjavík rekur SÍBS Múlabæ, dagvistun fyrir aldraða og í samstarfi við Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands Hlíðabæ, dagvistun fyrir minnissjúka.

HL-stöðvar eru starfræktar af SÍBS, Landssamtökum hjartasjúklinga og Hjartavernd. Þar hefur verið þróttmikið starf þar sem veitt er endurhæfing eftir bráð veikindi og aðgerðir og síðan viðhaldsþjálfun af ýmsum toga.

HAGUR AÐILDARFÉLAGA
Mikilvægt er að aðildarfélög SÍBS hafi hag af aðild sinni að samtökunum. SÍBS hefur því lagt áherslu á gott samstarf og stuðning við aðildarfélög sín í þeirri viðleitni að bæta hag hins almenna félagsmanns.

Starfsmenn SÍBS hafa orðið varir við þörf hjá félagsmönnum fyrir stuðning og ráðgjöf. Því hefur verið ráðinn félagsráðgjafi sem er til staðar á skrifstofu SÍBS og veitir ráðgjöf í persónulegum málum auk upplýsinga um réttindamál.

Stjórn SÍBS telur nauðsynlegt að halda uppi sem mestu og bestu sambandi og samstarfi við aðildarfélög sín og stefnir að því að auka það.


NEFNDIR
Undir stjórn SÍBS starfa nokkrar nefndir. Fjárhagsnefnd er m.a. gjaldkera til ráðuneytis um fjárhagsmálefni sambandsins og gerir tillögur að fjárhagsáætlun fyrir hvert ár. Félagsmálanefnd vinnur að eflingu deilda og auknu samstarfi, þá vinnur nefndin m.a. að því að fá nýja félaga inn í deildir sambandsins. Kynningar- og markaðsnefnd vinnur í samvinnu við deildir og stofnanir SÍBS að almennu kynningarstarfi og fjáröflun í samræmi við tilgang samtakanna. Laga- og skipulagsnefnd vakir yfir skipulagsmálum sambandsins og gerir tillögur til sambandsþings um lagabreytingar. Umsýslunefnd fasteigna hefur yfirlit yfir fasteignir sambandsins og uppstillingarnefnd starfar m.a. fyrir þing SÍBS.

SAMBANDSÞING
Sambandsþing eru haldin annaðhvert ár í september eða október. Á þingunum eru lagðir fram reikningar og skýrslur sambandsstjórnar um störf sambandsins og fyrirtækja þess á milli þinga. Þá fer fram kosning sambandsstjórnar og skoðunarmanna reikninga, kosning fastanefnda og fulltrúa í stjórnir fyrirtækja sambandsins, ákveðinn skattur félagsdeilda til sambandsins fyrir næstu tvö starfsár og afgreiðsla annarra mála sem fyrir þingið koma.

SAMBANDSSTJÓRN
Sambandsstjórn fer með málefni sambandsins milli sambandsþinga. Hana skipa formaður, varaformaður og sjö meðstjórnendur auk þriggja varamanna.

FRAMKVÆMDARÁÐ
Sambandsstjórnin kýs framkvæmdaráð úr sínum hópi, sem stýrir daglegum rekstri sambandsins í umboði stjórnarinnar.


FORMANNAFUNDUR
Formannafundur deilda og sambandsstjórnar skal halda milli þinga það árið sem þing er ekki.

 

SÍBS BLAÐIÐ
SÍBS blaðið er gefið út og er myndarlegt tímarit sem dreift er til allra félagsmanna SÍBS, á sjúkrahús, þjálfunarstaði og aðrar sjúkrastofnanir. Ritstjóri blaðsins er Pétur Bjarnason. Blaðið er bæði vandað og hagnýtt m.a. vegna þess að í hverju blaði eru oft tekin fyrir ákveðin þemu sem sérstaklega er fjallað um. Sem dæmi um málefni sem fjallað hefur verið um í blöðunum eru málefni hjartveikra barna, kæfisvefn, lungnasjúkdómar, lungnaendurhæfing, öldrunarsjúkdómar og þjónusta við aldraða. Þá er reglulega fjallað um starfsemina á Reykjalundi og einstökum þáttum gerð skil í blaðinu.


HEIMASÍÐA
Heimasíða SÍBS er http://www.sibs.is. Þar er að finna upplýsingar um SÍBS, Happdrætti SÍBS og aðildarfélög samtakanna.

HÖFUÐSTÖÐVAR SÍBS, SÍÐUMÚLA 6

Skrifstofur SÍBS eru í Síðumúla 6, 108 Reykjavík. Þar er aðalumboð og höfuðstöðvar Happdrættis SÍBS. Starfsmenn SÍBS og happdrættis SÍBS starfa þar ásamt starfsmönnum Hjartaheilla. Astma- og ofnæmisfélagið og Samtök lungnasjúklinga hafa skrifstofutíma á mánudögum.

ENDURHÆFINGARSVIÐ REYKJALUNDAR
Starfsemin á Reykjalundi hefur þróast í ýmis endurhæfingarsvið sem í dag eru: svið fyrir gigtsjúka, fyrir geðsjúka, fyrir þá sem hafa orðið fyrir áfalli í miðtaugakerfi, fyrir fólk sem á við langvinn verkjavandamál að stríða, fólk sem glímir við ofþyngd, börn og ungmenni sem ekki hafa náð eðlilegum þroska, auk sérstakra endurhæfingarsviða fyrir annars vegar hjartasjúklinga og hins vegar lungnasjúklinga. Þá er starfandi sérstakt svið atvinnuendurhæfingar sem stofnað var til nýlega. Á hverju sviði er starfsmannateymi og hafa þau í áranna rás náð að þróa með ágætum aðferðir og tækni í endurhæfingu innan hvers sviðs.

Starfsfólk Reykjalundar hefur leitast við að fylgjast vel með breyttum lifnaðarháttum landsmanna og svara breyttum þörfum sem skapast hafa, m.a. með svokölluðum "lífsstílssjúkdómum". Þetta hlýtur að teljast afar mikilvægt á tímum örra breytinga sem m.a. koma til vegna hreyfingarleysis og breytts mataræðis.

ÁKVÖRÐUN UM NÝBYGGINGU Á REYKJALUNDI
Félagar SÍBS eru nú um 6400. Þá hefur Reykjalundur þjónað öllum þeim sem leita eftir endurhæfingu þó að ekki sé um aðild þeirra að samtökunum að ræða. Þörfin fyrir endurhæfingu er því miður mikil og biðlistar langir. Upp úr 1990 fór að verða ljóst að húsnæðisleg aðstaða þjálfunardeilda hamlaði framgangi endurhæfingar á Reykjalundi og var reynt að mæta því með ýmiskonar hagræðingu húsnæðis. Ljóst var að slík bjargráð dyggðu skammt. Því var tekin sú sameiginlega ákvörðun stjórna SÍBS og Reykjalundar að koma upp rúmgóðu sérhæfðu þjálfunarhúsi.

FJÁRSÖFNUN / BYGGING ÞJÁLFUNARHÚSS
Það var 1. október 1999 sem forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni. Húsið er 2700 fermetra þjálfunarhús með tveim laugum, sundlaug og þjálfunarlaug, stór þjálfunarsalur og margvísleg önnur aðstaða. SÍBS hóf söfnun fjár árið 1998 meðal landsmanna til byggingar þessa húss. Þjóðin brást vel við og miklir fjármunir söfnuðust, sem með vöxtum voru orðnir að kr. 56 milljónum þegar þeirra varð þörf við byggingu þessa glæsilega þjálfunarhúss sem var vígt í janúar 2002.  


NAUÐSYN FRAMLAGA TIL REYKJALUNDAR
Ennþá vantar nokkurt fé til að greiða skuldir vegna þessa verks sem SÍBS hefur verið falið að afla. Því verður leitað til einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila eftir fjárstuðningi. Landsmenn eru því hvattir til að leggja inn á söfnunarreikning nr: 0113-18-930130 (kennitala SÍBS er 550269-7409) til að styðja við þetta mikilvæga verkefni. Greiða má í bönkum, sparisjóðum og í heimabankanum. Með því og/eða með kaupum á miða í Happdrætti SÍBS, er hægt að aðstoða SÍBS við að ná fram mikilvægum markmiðum sínum og renna þannig enn frekari stoðum undir þá mikilvægu starfsemi sem unnið er að á vegum SÍBS og Reykjalundar.

STYÐJUM SJÚKA TIL SJÁLFSBJARGAR
Ennþá eru í fullu gildi orð Sigurbjörns Einarssonar, síðar biskups, árið 1946. "Hlutverk Reykjalundar er eitt hið göfugasta, sem með höndum er haft í landi hér."  Lauslega talið hafa 30 - 40 þúsund landsmanna notið endurhæfingar á Reykjalundi og áfram verður haldið við að vinna undir kjörorðum SÍBS: "styðjum sjúka til sjálfsbjargar" á Reykjalundi og í öðrum rekstrareiningum SÍBS.

18/12 2007,
HH


Verkefni SÍBS

og Rauða kross

Íslands

   Hvað er í boði?

Netföng hjá SÍBS

Smellið á merkið:

       

Munið MedicAlert